18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)
179. mál, lántaka vegna framkvæmdaáætlunar fyrir árið 1967
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég skil svör hæstv. ráðh. á þá leið, að þessi upphæð hvað snertir vegagerð sé í samræmi við það, sem stendur í vegáætlun. En þar af leiðandi er hér ekki farið eftir neinni sérstakri Vestfjarðaáætlun um vegi og flugvelli, heldur er þetta skv. vegáætluninni, sem nú er í gildi og búin er að vera í gildi í meira en tvö ár. Og það er rétt, að það eru 12½ millj. kr. fjárveitingar af lánsfé til vega á Vestfjörðum á þessu ári í vegáætlun. En hvað er þá til flugvalla? 12½ millj. er í þessari gr. 12½ millj. er í gildandi vegáætlun til vega á Vestfjörðum af lánsfé. Hvað er þá til flugvalla, eins og stendur í þessari gr.? Ég sé það ekki.
Hæstv. ráðh. talar um, að hún sé ekkert launungarmál, þessi framkvæmdaáætlun fyrir Vestfirði. Hún er launungarmál fyrir mér. Ekki hef ég séð hana. Hvaða þm. hafa séð hana? Vegáætlun er ekkert launungarmál, það veit ég. En Vestfjarðaáætlun, ef hún er til, þá er hún a.m.k. launungarmál fyrir þm. Ég held, að það sé alveg áreiðanlegt — enda var hæstv. ráðh. að impra á því — að það er eftir að fylla út í hana, og það er það, sem ég var einmitt að tala um, að það muni kannske taka eitthvað fram eftir næsta kjörtímabili að fylla út í hana að óbreyttum ástæðum.