18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)

129. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Birgir Finnsson:

Herra forseti. Auk þess sem ég tel, að þessi till., ef samþykkt yrði, mundi kippa fjárhagsgrundvellinum undan m.a. Tryggingasjóði fiskiskipa, Fiskveiðasjóði, Fiskimálasjóði o. fl., þá álít ég, að hún mundi einnig raska þeim grundvelli, sem byggður hefur verið upp til þess að koma á því bolfisksverði, sem nú gildir, og þess vegna segi ég nei.