14.04.1967
Neðri deild: 66. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)

190. mál, girðingalög

Frsm. (Sigurvin Einarsson):

Herra forseti. Þetta frv. um breytingu á girðingalögunum er flutt sem stjórnarfrv. og samkv. beiðni Búnaðarfélags Íslands. Það er mjög einföld breyting, í raun og veru aðeins nánari skýring á lögunum til að taka af tvímæli um skilning á þeim, og n. leggur til, að það verði samþ.