15.12.1966
Sameinað þing: 17. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

1. mál, fjárlög 1967

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Vegna þess að ég hef tækifæri til þess, vil ég koma hingað til þess að mótmæla þessum úrskurði hæstv. forseta. Ég tel hann rangan og ekki í samræmi við þingvenjur, sem hér hafa verið, eða þingsköp. Ég segi já.