06.04.1967
Neðri deild: 59. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)
155. mál, leigubifreiðar
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Allir þm. Austf. standa að flutningi þessa máls, en efni frv. er, að samgmrn. verði framvegis heimilt að takmarka fjölda leigubifreiða til fólksflutninga í þeim kauptúnum, sem ásamt aðliggjandi hreppum hafa 700 íbúa eða fleiri, og hreppsnefndum sé heimilt að ákveða, að allar leigubifreiðar til fólksflutninga á hlutaðeigandi félagssvæði hafi afgreiðslu á bifreiðastöð, sem rekin er af stéttarfélagi bifreiðastjóra.
Nýmæli er, að fleiri en einn hreppur geti sameiginlega staðið að ráðstöfunum af þessu tagi, en áður hefur þetta verið bundið við, að hvert byggðarlag væri út af fyrir sig og þá miðað við, að þessi skipulagning gæti eingöngu átt sér stað í byggðarlögum, sem hefðu 700 íbúa eða fleiri. En þarna er gert ráð fyrir því, að fleiri en eitt byggðarlag geti staðið saman, ef hreppsnefndir eru allar sammála. Reynslan hefur sýnt, að okkar dómi, að það væri mjög nauðsynlegt og skynsamlegt að gera þessa lagabreyt., og hv. Ed. féllst á það og samgmn. d. mælti með því einum rómi, og ég leyfi mér fyrir hönd okkar flm., sem að þessu stöndum, að leggja til, að málinu verði vísað til hv. samgmn.