07.11.1966
Neðri deild: 12. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. nóv. 1966.

Samkv. beiðni Matthíasar Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., sem er erlendis í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Oddur Andrésson bóndi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson.“

Oddur Andrésson hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili, og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Býð ég hann hér með velkominn til setu í hv. þd.