14.11.1966
Neðri deild: 15. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 9. nóv. 1966.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Hjörtur Eldjárn Þórarinsson bóndi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Ingvar Gíslason,

5. þm. Norðurl. e.“

Hjörtur Eldjárn Þórarinsson hefur áður átt sæti á Alþ. og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég leyfi mér því að bjóða hann velkominn til Þingsetu í hv. þd.

Þá hefur enn fremur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 11. nóv. 1966.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður landsk. þm Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Matthías Bjarnason,

11. landsk. þm.

Ragnar Jónsson skrifstofustjóri hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Býð ég hann velkominn til þess að taka sæti í hv. þd.