07.03.1967
Neðri deild: 50. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1858 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 6. marz 1967.

Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Sverrir Hermannsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.

Jónas Pétursson,

3. þm. Austf.“

Sverrir Hermannsson viðskiptafræðingur hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég leyfi mér að bjóða hann velkominn til setu í hv. þd.