06.04.1967
Sameinað þing: 30. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík 5. apríl 1967.

Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á, þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstaka anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Jón Ísberg sýslumaður, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti Nd.

Kjörbréf Jóns Ísbergs liggur einnig hér fyrir og vil ég leyfa mér að biðja kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert 10 mín. fundarhlé. — [Fundarhlé.]