17.12.1966
Sameinað þing: 19. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

Þingsetning

forseti (BF):

Það er nú komið að því, að störfum Alþingis verði frestað um sinn vegna jólahátíðarinnar og áramótanna. Ég óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu. Ég þakka þeim samveruna og góða samvinnu á árinu, sem er senn á enda. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og ég óska þess, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing verður kvatt saman til fundar á ný. Skrifstofustjóra og starfsfólki Alþ. óska ég einnig gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka jafnframt vel unnin störf og ánægjulega samvinnu.