17.12.1966
Sameinað þing: 19. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)

Þingsetning

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 87. löggjafarþings, frá 17. des. 1966 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til funda á ný eigi síðar en 1. febrúar 1967.

Gjört í Reykjavík, 15. desember 1966.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 87. löggjafarþings, er frestað frá 17. des., og verður þingið kvatt til funda á ný eigi síðar en 1. febr. 1967. Vonast ég þá til, að við hittumst allir heilir, glaðir og reifir.

Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins, svo og landslýð öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.