01.02.1967
Sameinað þing: 20. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)

Þingsetning

Forseti (BF):

Samkv. forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngjört, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans í minn garð og hv. alþm., og ég óska honum og þingheimi öllum velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.