21.03.1967
Neðri deild: 58. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

Þinghlé

forseti (SB):

Þá er dagskrá þessa fundar þrotin. Næsti fundur hv. þd. verður væntanlega haldinn á venjulegum tíma fimmtudaginn 6. apríl og verður boðaður með dagskrá. Verða þá haldnir fundir í báðum þd. Enn fremur verða deildafundir föstudag og laugardag 7. og 8. apríl.

Þar sem þetta verður síðasti fundur hv. þd. fyrir páskahelgi, leyfi ég mér að óska öllum hv. þdm. gleðilegrar páskahátíðar. Utanbæjarþingmönnum árna ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að hv. þdm. megi hér allir heilir hittast að loknu páskafríi.