03.11.1966
Neðri deild: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (1734)

25. mál, verðjöfnunargjald af veiðarfærum

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það kom fram víð fyrri umr., að þetta mál gæti átt heima í tveimur n., iðnn. og sjútvn., og það er í sjálfu sér ekki nema eðlilegt. Ég vil því leyfa mér að sameina þessi sjónarmið og leggja til, að það yrði kosin sérstök n., 7 manna n., í þessu máli, sem er í samræmi við þingsköp og þingvenjur.