24.11.1966
Neðri deild: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (1801)

31. mál, verðlagsmál

Davíð Ólafsson:

Herra forseti. Ég vildi sem formaður fjhn. og í tilefni af þessari málaleitan hv. 3. þm. Reykv. skýra frá því, að n. hefur á einum fundi farið yfir þetta frv. og mun flýta afgreiðslu þess eftir föngum. Því hefði ef til vill getað verið lokið núna, en það stóð sérstaklega á, þannig að það var ekki hægt að ganga frá afgreiðslu málsins, en ég mun sjá svo um, að málið fái eðlilegan framgang í nefndinni.