18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (2177)

64. mál, þungaflutningar í snjó

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa till. til athugunar og leitað um hana umsagnar vegamálastjóra, og mælir vegamálastjóri með því, að þessi athugun, sem þáltill. gerir ráð fyrir að fram fari, verði gerð. Hins vegar tekur vegamálastjóri fram, að þetta sé ekki beint verkefni vegagerðarinnar að annast flutninga, og sömuleiðis vekur hann athygli á því, að þessar rannsóknir og tilraunir muni vera afar kostnaðarsamar og engin leið til þess, að vegagerðin geti tekið að sér slíkar rannsóknir og tilraunir, nema sérstakar fjárveitingar komi í því skyni.

Allshn. er sammála um að mæla með því, að þessar athuganir fari fram, og þar með mælir hún með samþykkt till.