16.12.1966
Neðri deild: 32. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (265)

90. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. þessarar d. hefur haft til meðferðar og athugunar frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 143.

Eins og fram kom hjá hæstv. félmrh. og einnig kemur fram í aths., sem frv. fylgja, er hér um þá breyt. eina að ræða á l. að gera aðstöðu verzlunar- og skrifstofufólks þannig, að það geti öðlazt aðild að atvinnuleysistryggingum. N, varð sammála um að mæla með frv. óbreyttu.