08.02.1967
Sameinað þing: 22. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í D-deild Alþingistíðinda. (2681)
208. mál, jafnrétti Íslendinga í samskiptum við Bandaríkin
Utanrrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð vegna þess, að mér fannst hv. fyrirspyrjandi láta, liggja að því, að Bandaríkin hefðu gert kröfu um þetta eða eitthvað slíkt. En ég vil taka það alveg skýrt fram, að afnám vegabréfaskyldunnar hér er gert að eigin frumkvæði og án þess að nokkuð hafi komið fram frá Bandaríkjamönnum, sem færi í þá átt, að þeir óskuðu attir því, að þetta afnám væri gert. Við getum náttúrlega, og höfum alltaf getað á hvaða stundu sem er haft þessa vegabréfsáritun, en allar þjóðir telja þetta meira og minna óþarft, þjóðir, sem hafa ekki nein ákvæði í sínum lögum, sem gera greinarmun á þeim, sem inn í landið koma. Þess vegna held ég, að flestar þjóðir, sem hafa afnumið vegabréfaáritunina, hafi gert það alveg án hliðsjónar af því, hvað Bandaríkin gera, eingöngu vegna þess, að þeim finnst það þægilegra bæði fyrir sig og þá, sem til landsins koma. En ég vildi bara undirstrika það, að þetta er gert að eigin frumkvæði hér heima og án allrar íhlutunar annars staðar frá.