12.04.1967
Sameinað þing: 34. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í D-deild Alþingistíðinda. (2766)

131. mál, störf flugvallanefndar

Fyrirspyrjandi (Axel Jónsson):

Herra forseti. Ég vil þakka ráðh. fyrir greinargóð svör. Ég hefði að vísu fremur kosið, að álit n. hefði legið fyrir, en um það er ekki að sakast. Ég fagna því, að vænta má þessa álits um næstu mánaðamót, og fagna því enn frekar, að þá muni verða stuðlað að því að taka hið fyrsta ákveðna afstöðu á grundvelli þess nál. Það tel ég vera ákaflega mikilsvert, að ákvarðanir verði teknar varðandi þetta mál.