03.11.1966
Efri deild: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (446)

20. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til athugunar það frv., sem hér er til umr. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um efni þess, vísa um það til fskj. með frv. og ræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins. En hér er um að ræða staðfestingu á brbl., sem út voru gefin í maí s.l.

Eins og fram kemur í nál. á þskj. 48, leggur n. til, að frv, verði samþ. Tveir nm., þeir hv. 2. landsk. og hv. 4. þm. Vestf., voru fjarverandi, þegar málið var afgreitt í nefndinni.