16.03.1967
Efri deild: 54. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (678)
148. mál, Lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Efni þess frv., sem hér liggur fyrir, er það, að aðilar að Lífeyrissjóði barnakennara, sem verið hafa í þjónustu ríkisins 15 ár eða lengur, en hætt störfum, áður en hámarksaldri var náð, skuli njóta sams konar lífeyrisréttinda og aðrir meðlimir lífeyrissjóðsins, þannig að eftirlaun þeirra miðist við launin, eins og þau eru á hverjum tíma. Eins og nál. á þskj. 337 ber með sér, mælir fjhn. einróma með því, að frv. verði samþ. óbreytt.