18.10.1966
Sameinað þing: 4. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

1. mál, fjárlög 1967

Forseti (BF):

Þessi útvarpsumr. fer þannig fram, að fyrst flytur hæstv. fjmrh. framsöguræðu, og er ræðutími hans ekki takmarkaður. Því næst verða fluttar hálfrar stundar ræður af hálfu annarra þingflokka en ráðh, og í þessari röð: Framsfl., ræðumaður Halldór E. Sigurðsson,a 3. þm. Vesturl., Alþfl., ræðumaður Birgir Finnsson, 2. landsk. þm., Alþb., ræðumaður Geir Gunnarsson, 10. landsk. þm. Að lokum talar fjmrh. aftur og hefur stundarfjórðung til andsvara.

Hefst nú umr. og tekur til máls hæstv. fjmrh., Magnús Jónsson.