11.04.1967
Neðri deild: 64. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

166. mál, Iðnlánasjóður

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Í veikindaforföllum hv. form. iðnn. og frsm. leyfi ég mér að flytja framsögu fyrir meiri hl. hv. iðnn. varðandi frv. til l. um breyt. á l. nr. 45 3. apríl 1963 um iðnlánasjóð á þskj. 356. Iðnn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og eins og kemur fram í nál. á þskj. 428, hefur n. klofnað. Meiri hl. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en minni hl. mun skila séráliti eða sérálitum.