10.10.1967
Sameinað þing: -1. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Hinn 21. september 1967 var gefið út svo hljóðandi bréf: Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1967.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.

Gert í Reykjavík 21. september 1967.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1967.“

Samkv. því bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, gæfu og gengis.

Bið ég alþm. að minnast ættjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þangað til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram. Bið ég því aldursforseta, Sigurvin Einarsson, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.