19.04.1968
Efri deild: 99. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (1387)
8. mál, sala Setbergs o.fl.
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Vegna þess að umr. hafa haldið áfram um þetta mál í dálitlum deilutón og mér finnst eins og aðeins hafi verið vikið að þeim orðum, sem ég sagði hér, og að þau væru svona hálft í hvoru lögð út á þann veg, að ég vildi synja ríkisstj. um lagaheimild fyrir afhendingu á Móadalslandi og Saurbæjarjörðinni til BSRB, þá vil ég taka það sérstaklega fram, að svo er ekki. Ég tel mér sérstaklega skylt að standa að því, að ríkisstj. fái þessa heimild og mun greiða atkvæði með henni. En á hinn bóginn játa ég það, að það er komin svo löng trossa í þetta frv., að ég hefði viljað athuga betur ýmsa hluti í því. Ég tel ekkert á huldu með þessa heimild, henni er sjálfsagt og skylt að fylgja og til þess að við það sé staðið neyðist maður sjálfsagt til þess að samþykkja ýmislegt fleira í leiðinni.
Það, sem ég var að leggja áherzlu á, var það, að ég vildi leita eftir því, hvort ekki gæti orðið samkomulag um það að fresta málinu. En fyrst hæstv. ráðh., sem hér hefur talað, telur það ekki vera þess eðlis, að hann geti það án þess að vera látinn setja að vissu leyti niður við það, vil ég sízt taka þátt í því. Ég hef ýmislegt að athuga við stör hæstv. ráðh., eins og iðulega hefur komið hér fram, en í þessu atriði tel ég, að hann hafi vel og myndarlega gert og beri að þakka honum það og þá auðvitað að veita honum þær heimildir, sem hann kann að eiga ófengnar fyrir því. Og vænti ég þess, að þá sé ekki neinn misskilningur um mína afstöðu til málsins.