27.11.1967
Neðri deild: 30. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (152)

66. mál, verðlagsmál

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Við umr. þessa máls hefur komið fram alveg einstök meinbægni við önnur stærstu launþegasamtökin hér í þessu landi, BSRB, og eins vegna þess að hér er nýbúið að afgreiða mjög þýðingarmikið mál, þ.e. afnám verðtryggingar á laun, sé ég ekki ástæðu til þess að greiða atkv. með þessu frv. og sit hjá.