04.04.1968
Efri deild: 81. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1783 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

181. mál, tékkar

Flm. (Pétur Benediktsson):

Herra forseti. Það stendur nú eins á um þetta frv. eins og það um víxla, sem við vorum að ljúka við að afgreiða til 2. umr., að það er flutt að beiðni samvinnunefndar banka og sparisjóða. Sannleikurinn er nú sá, að mér er ekki kunnugt um, að nokkurn tíma hafi farið fram afsögn á tékka á Íslandi, en vegna samræmis í löggjöfinni þótti rétt að flytja þetta frv. Það er undir öllum kringumstæðum meinlaust og kynni hugsanlega einhvern tímann að koma að gagni.

Ég leyfi mér að mælast til, að það fái sömu meðferð og hitt frv. og því verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.