16.04.1968
Neðri deild: 98. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)

62. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti Þetta frv. til breyt. á jarðræktarl., sem hér liggur fyrir, var flutt af hv. landbn. Ed. Það hlaut þar allvandlega meðferð. Það var sent af hálfu þeirrar n. búnaðarþingi til umsagnar og gerðar á því nokkrar breyt. eftir þeim till., sem búnaðarþing gerði. Landbn. þessarar hv. d. hefur síðan haft málið til athugunar, og eins og fram kemur í nál., leggur hún til, að frv. verði samþykkt óbreytt.