09.04.1968
Neðri deild: 94. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1799 í B-deild Alþingistíðinda. (1747)

149. mál, breyting á mörkum Eskifjaðrarhrepps og Reyðarfjarðarhrepps og sala Hólma

Eysteinn Jónsson:

Ég vil aðeins fyrir hönd okkar flm. þakka n. fyrir það starf, sem hún hefur lagt í málið. Það er ekkert nýtt, að ágreiningur sé um mál eins og þetta, að breyta hreppamörkum, og raunar koma mál af því tagi ekki hingað á Alþ. nema svo sé. Það hefur verið lögð mikil vinna í að finna eðlilega lausn á málinu, og það vonum við að hafi tekizt með þessu frv., og því þakka ég n. fyrir hennar undirtektir.