19.04.1968
Efri deild: 98. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1838 í B-deild Alþingistíðinda. (1842)

186. mál, sala Jórvíkur í Hjaltastaðahreppi

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð fyrir þessu máli. Landbn. þessarar hv. d. hafði tækifæri til að kynna sér þetta mál á meðan það enn var til afgreiðslu í Nd. og fylgjast með þeim umsögnum, sem gefnar hafa verið um þetta bæði af landnámsstjóra og Jarðeignadeild ríkisins. Hún hefur síðan skotið á stuttum fundi til að ganga frá nál., þar sem hún leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.