23.10.1967
Sameinað þing: 6. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2191 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 19. okt. 1967.

Jóhann Hafstein, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér svo hljóðandi bréf:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu 2–3 vikur vegna fjarveru í embættiserindum og Þorsteinn Gíslason skipstjóri, sem nú er næsti varamaður á lista Sjálfstfl. í Reykjavík, telur sér ekki fært að gegna þingmennsku á meðan að þessu sinni, leyfi ég mér að óska þess, að þar næsti varamaður á D-listanum, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf, útgefið til Guðmundar H. Garðarssonar af yfirkjörstjórn Reykjavíkur, liggur hér fyrir. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert hlé á fundinum. — [Fundarhlé.]