15.11.1967
Sameinað þing: 12. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2192 í B-deild Alþingistíðinda. (2001)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 14. nóv. 1967.

Skúli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur vegna starfa utan þings, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf Jóns Kjartanssonar, útgefið af yfirkjörstjórn Norðurl. v., og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]