12.02.1968
Sameinað þing: 36. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2023)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 9. febr. 1968.

Magnús Kjartansson, 6. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja þing Norðurlandaráðs og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Jón Snorri Þorleifsson trésmiður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf Jóns Snorra Þorleifssonar trésmiðs, gefið út af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis. Vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]