12.02.1968
Sameinað þing: 36. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2024)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og athugað kjörbréf Jóns Snorra Þorleifssonar, sem er 1. varaþm. Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi. N. hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþ. og kosningin tekin gild.