13.02.1968
Sameinað þing: 37. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (2027)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Odds Andréssonar bónda á Neðra-Hálsi, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, og mælir einróma með samþykkt þess. Eins og fram kom í bréfi hæstv. forseta Nd., er 1. varaþm. Sjálfstfl. í þessu kjördæmi veikur og getur ekki af þeim sökum tekið nú sæti á Alþ.

Ég leyfi mér því, herra forseti, að leggja til fyrir hönd n., að kjörbréf Odds Andréssonar verði samþ. og kosning hans gild tekin sem 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi.