14.02.1968
Sameinað þing: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (2029)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 14. febr. 1968.

Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvstj. Sjálfstfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið: „Samkv. beiðni forsrh., Bjarna Benediktssonar, sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður hans, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn hefur áður farið fram á kjörbréfi Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra, og tekur hann nú sæti á þinginu sem 1. þm. Reykv.

Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Sigurður Bjarnason, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja þing Norðurlandaráðs og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ásberg Sigurðsson sýslumaður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Þessu bréfi fylgir kjörbréf til handa Ásberg Sigurðssyni, útgefið af yfirkjörstjórn Vestfjarðakjördæmis, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert stutt fundarhlé. — [Fundarhlé.]