19.03.1968
Sameinað þing: 45. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 16. marz 1968.

Pálmi Jónsson, 4. þm. Norðurl. v., hefur í dag sent mér svo hljóðandi símskeyti:

„Vegna sérstakra anna heima fyrir get ég ekki sinnt þingstörfum næstu vikur. Ég leyfi mér því að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Matthías Á. Mathiesen,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar, 1. varamanns Sjálfstfl. í Norðurl. v., útgefið af yfirkjörstjórn Norðurl. v. Varaþm. hefur að vísu áður mætt á þinginu sem landsk. þm., en ekki áður mætt sem kjördæmiskjörinn varaþm. Þarf því að fara fram rannsókn á kjörbréfinu. Leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. [Fundarhlé.]