08.04.1968
Neðri deild: 94. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í B-deild Alþingistíðinda. (2059)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 8. apríl 1968.

Samkvæmt beiðni dómsmálaráðherra Jóhanns Hafstein, sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður hans, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson.“

Kjörbréf Geirs Hallgrímssonar hefur áður verið rannsakað, og skv. framansögðu tekur hann nú sæti í hv. þd. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.