20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

Þingfrestun og þinghlé

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta góðar óskir hans í garð okkar þm. Ég hygg, að ég megi tala hér fyrir munn okkar allra, þegar ég flyt honum þakkir fyrir góða samvinnu í forsetastóli varðandi þingstörfin og flyt honum jólaóskir og fjölskyldu hans og óska honum og fjölskyldunni farsæls nýs árs og vona, að við sjáum hann hér heilan á húfi eftir jólahlé. Ég bið menn að gera þessi orð að sínum með því að rísa á fætur. [Þm. risu úr sætum.]