20.04.1968
Sameinað þing: 58. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2137)

Þinglausnir

Forseti (BF):

Ég þakka hv. 1. þm. Austf., Eysteini Jónssyni, fyrir hlý orð og vinsamleg í minn garð og minnar fjölskyldu. Einnig þakka ég hv. alþm. undirtektir þeirra og endurtek óskir mínar um gæfu og gengi þeim til handa. Um leið og ég óska öllum þingheimi gleðilegs sumars læt ég í ljós þá von, að við hittumst hér öll heil að hausti.