20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2582)

87. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Till. þessi er í samræmi við það, sem tíðkazt hefur. Þingstörfum er nú svo langt komið, að öruggt má telja, að menn geti farið í jólafrí nú í kvöld, og er þá ætlunin að fresta þinginu fram í miðjan janúar, en það komi þá saman aftur.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um málið frekar, en mæli með því, að till. verði samþ.