17.04.1968
Sameinað þing: 52. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (2686)

57. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna

(Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti.

Till. sú, sem hér um ræðir, er um endurskoðun l, um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum og hljóðar svo:

Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta undirbúa og leggja fyrir Alþ. frv. til l. um breyt. á l. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum á þann veg, að sjóðsfélögum verði tryggð eigi minni réttindi en aðilar að lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins njóta nú.“

Allshn. sendi þessa till. stjórn sjóðsins til umsagnar, og lagði sjóðsstjórnin til fyrir sitt leyti, að till. væri samþ.

Allshn. leggur einróma til, að till. verði samþ.