17.04.1968
Sameinað þing: 52. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í D-deild Alþingistíðinda. (2760)

160. mál, náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég vildi bara gera grein fyrir því, af því að vitnað er í grg., að eins og ég tók fram í upphafi máls. míns, þá var algjör samstaða í allshn. um flutning till. eins og hún er á þskj. 366 og grg. líka, og grg. var við það miðuð, að allir gætu verið sammála um grg. og till., en um skilning á orðalagi var ekki ágreiningur.