28.11.1967
Sameinað þing: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í D-deild Alþingistíðinda. (2774)

63. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (BF):

Umr. í kvöld skiptist í tvær umferðir, 25–30 mín. á flokk í fyrri umferð, en 15–20 mín. í síðari umferð. Röð flokkanna er þessi: Framsfl., Sjálfstfl., Alþb. og Alþfl. Af hálfu Framsfl. tala Eysteinn Jónsson og Ingvar Gíslason, af hálfu Sjálfstfl. tala Bjarni Benediktsson, Pétur Sigurðsson, Matthías Bjarnason og Ingólfur Jónsson. Af hálfu Alþb. tala Hannibal Valdimarsson og Magnús Kjartansson. Af hálfu Alþfl. tala Gylfi Þ. Gíslason og Bragi Sigurjónsson. Hefst þá umr., og til máls tekur fyrsti ræðumaður kvöldsins, Eysteinn Jónsson, og talar af hálfu Framsfl.