31.01.1968
Sameinað þing: 32. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í D-deild Alþingistíðinda. (3119)

96. mál, gengishagnaður

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja hér fsp. fyrir hæstv. viðskmrh. um það, hve miklu nemi gengishagnaður Seðlabankans og bankakerfisins af gengislækkuninni, sem fram fór 24. nóv. s.l. Ég tel, að hér sé um almennar og mjög þýðingarmiklar upplýsingar að ræða, sem ættu að liggja fyrir, ekki aðeins öllum alþm., heldur öllum almenningi, og í rauninni hefðu þessar upplýsingar þegar átt að vera komnar fram, en ég vænti þess, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að gefa þessar upplýsingar hér á Alþ.