05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í D-deild Alþingistíðinda. (3217)

204. mál, bifreiðaeign ríkisins

Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég vona, að þessar fsp. skýri sig sjálfar, og ég mun ekki hafa neina sérstaka framsögu fyrir þeim. Ég vil aðeins taka það fram, að ég hef ekki orðið þess var, að upplýsingar um bifreiðaeign hins opinbera liggi fyrir á einum eða aðgengilegum stað, né heldur virðist það þægilegt fyrir þm. eða almenna borgara að fá vitneskju um önnur þau atriði, sem um er spurt. Það er von okkar fyrirspyrjenda, að væntanleg svör hæstv. ráðh. við fsp. bæti þar úr.