12.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

Stjórnarsamningur

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Fyrir hönd Alþfl. vil ég taka fram, að miðstjórn flokksins hefur samþ. einróma að halda áfram stjórnarsamstarfi við Sjálfstfl. á grundvelli þeirrar stefnuyfirlýsingar, sem hæstv. forsrh. hefur nú lesið, og enn fremur, að verkaskipting í ríkisstj. skuli vera óbreytt.