12.12.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í B-deild Alþingistíðinda. (451)

1. mál, fjárlög 1968

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Enda þótt ég telji þessa upphæð allsendis ófullnægjandi til þess að bæta námsmönnum upp það geysilega tjón, sem þeir verða fyrir af völdum gengisfellingarinnar, tel ég, að hér sé um nokkra úrbót að ræða og megi á engan hátt minna vera heldur en hér er lagt til og segi því já.