20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (502)

1. mál, fjárlög 1968

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er fylgjandi því, að Vestmannaeyjabúar fái stuðning ríkisins við sínar vatnsveituframkvæmdir, en ég tel þessa aðferð, sem þarna er stungið upp á, ekki nothæfa, og segi því nei.