18.01.1968
Efri deild: 42. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (521)

4. mál, innheimta gjalda með viðauka

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Hv. þm. hefði nú kannske getað sparað sér þessa ræðu, sem ég hef ekkert út á að setja að öðru leyti, en ég vil aðeins upplýsa það hér, að rn. hefur þegar ákveðið að nota ekki þessa heimild varðandi hækkun stimpilgjalds, þegar um er að ræða sölu skráningarskyldra skipa.